Litlir diskar frá Bitz
Bitz línan er hönnuð af hinum danska Christian Bitz. Hann er næringarfræðingur með markmið að gera Danmörk hollari. Hann er þekktur sjónvarpsmaður í og heldur gríðarlega vinsæla fyrirlestra. Hann kemur sterkur inn í hönnunarheiminn í Danmörku með matarstellinu sínu og fylgihlutum.
Virkilega fallegir diskar frá Bitz. Diskarnir eru gerðir úr leir en eru með glansáferð ofan á sem kemur í nokkrum mismunandi litum. Má setja í uppþvottavél, örbylgjuofn en einnig má diskurinn fara í bakarofn á allt að 220 gráður. Diskinn er hægt að fá í tveimur stærðum.
Stærð: 21 cm á þvermál
Litur: Grár / Grænn