In-Circles loftljós frá Bolia
Bolia er danskt merki sem sérhæfir sig í húsgögnum. Vörurnar frá Bolia eru í skandinavískum stíl og njóta mikilla vinsælda í evrópu. Hjá Bolia vinna margverðlaunaðir hönnuðir sem leggja hjarta og sál í hönnunina. Bolia merkið/verslunin er þekktast fyrir sérhönnuðu sófana sem viðskiptavinir setja saman eftir sinu höfði.
"This light shines however you please. Minimalist and flexible, it will put a highlight on anything you want.”
Ótrúlega skemmtilegt loftljós. Þú getur stýrt lýsingunni frá ljósunum með því að hreyfa þau til. Minimalísk og smart hönnun, hægt að fá ljósið svart á litinn og í möttu brassi.
Stærð: 74 cm á hæð, 47 cm á breidd og 20 cm á dýpt. Hvort ljós/skermur er 20 cm á þvermál.
Litur: Matt brass