Mood skenkur frá Bolia
Bolia er danskt merki sem sérhæfir sig í húsgögnum. Vörurnar frá Bolia eru í skandinavískum stíl og njóta mikilla vinsælda í evrópu. Hjá Bolia vinna margverðlaunaðir hönnuðir sem leggja hjarta og sál í hönnunina. Bolia merkið/verslunin er þekktast fyrir sérhönnuðu sófana sem viðskiptavinir setja saman eftir sinu höfði.
Mood skenkinn er hægt að í 12 mismunandi útgáfum. Skenkurinn er annaðhvort heill úr við eða fronturinn lamineraður hvítur, fenix lamineraður í gráu eða svörtu. Viðurinn í skápnum er eik, olíuborin hnota eða hvíttuð eik. Skenkurinn er framleiddur í Evrópu og þolir allt að 40 kg. Fæturnir eru úr gegnheilli hnotu eða eik. Stærðin á skenknum er: 117 cm á hæð, 113 cm á breidd og 45 cm á dýpt.
Verðið á skenknum ákvarðast eftir stærð og viðurinn í skenknum getur líka haft áhrif á verðið, það á aðallega við þegar kemur að hnotu. Komið endilega við í verslun hjá okkur fyrir frekari upplýsingar eða sendið okkur línu.