Roma beauty púði frá Jakobsdal
Jakobsdal textil sérhæfir sig í fallegum textíl vörum, allt frá sófum í gardínur og púða. Jakobsdal textíl verksmiðjan opnaði fyrst árið 1910 og er staðsett í Svíþjóð. Virkilega fallega liti og munstur má finna í vörunum frá þeim.
Roma beauty velúr púðinn frá Jakobsdal er með virkilega fallegu munstri og setur svip á hvaða sófa og rúm sem hann fær að hvíla á. Púðann er hægt að fá í nokkrum af litum. Ekki er mælt með að setja púðann í þvottavél. Fyllingin í púðanum er fiður.
Stærð: 45 x 45 cm
Efni: 100% pólýester
Litur: Khaki green