Still Floor púði frá Semibasic
Semibasic er danskt merki sem var stofnað af Vivian Hensrik og Mathilde Thomsen árið 2013. Hugmyndafræði þeirra er einföld, "We offer a little more than just the basics" eða við bjóðum uppá aðeins meira en það helsta. Hönnunin frá þeim er tímalaus og mikil gæði í vörunum.
Fallegur púði frá Semibasic. Púðinn er úr 100% bómull og fyllingin í púðanum er dúnn/fiður. Hugmyndin af fallega munstrinu í púðanum er innblásin af upprunalega herringbone viðargólfinu í ráðhúsinu í Árhúsum, Danmörku. Heillandi gólf með mikla sögu. Til í tveimur stærðum og þremur litum, einnig er hægt að fá teppi í stíl.
Stærð: 50 x 50 cm
Efni: 100% bómull og fyllingin er dúnn/fiður
Litur: Grey / Grár