Pantanir
Snúran tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Réttur er áskilinn til að staðfesta pantanir símleiðis í undantekningartilfellum.
Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað en gæti verið lengri í kringum jól og stóra verslunardaga. Varan er send beint heim til kaupanda á höfuðborgarsvæðinu með Dropp og öðrum þeim svæðum sem Dropp þjónustar. Viðkomandi fær tilkynningu áður en sendingin kemur. Ef óskað er eftir því afhendum við samdægurs ef pantað er fyrir hádegi og vara er sótt í verslun okkar að Miðhrauni 24, Garðabæ. Á álagstímum getur þó komið fyrir að afhendingartími sé lengri. Þegar vara er væntanleg getur afhendingartíminn verið frá 1-4 vikur.
Gjafainnpökkun
Við bjóðum uppá fría gjafainnpökkun bæði í verslun hjá okkur sem og í vefverslun. Þetta á þó einungis við smávörur. Því miður getum við ekki boðið uppá gjafainnpökkun á húsgögnum, hillum eða speglum. Á álagstímum getur þó komið fyrir að gjafainnpökkun sé ekki í boði í vefverslun, eingöngu því við náum ekki að anna því.
Sérpantanir
Við tökum einnig að okkur að sérpanta vörur frá þeim merkjum sem við erum að selja. Fyrirspurnir varðandi sérpantanir skal senda á pantanir@snuran.is. Þegar um sérpantanir er að ræða er afhendingartími almennt 4-8 vikur. Farið er fram á 30-50% innborgun þegar varan er pöntuð og afgangurinn greiddur þegar varan er afhent, sérpöntunum er ekki hægt að skila.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja heimsendingu með Dropp, afhendingu í póstbox eða pósthús. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.*
*ATHUGIÐ að þetta á ekki við um húsgögn eða stærri vörur, eins og ákveðna spegla eða ljós sem eru einfaldlega í of stórum pakkningum eða mjög brothætt. Við getum sent þessar vörur heim að dyrum gegn gjaldi annars er auðvitað alltaf hægt að sækja vöruna til okkar að Miðhrauni 24, Garðabæ.
Hægt er að fá heimsendingarþjónustu á húsgögnum og stærri vörum s.k. verðskrá. Heimsendingarþjónusta er ekki innifalinn í vöruverði. Ef skemmdir verða á vörunni eftir að hún er tekin út úr bílnum, er það á ábyrgð viðtakanda þar sem bílstjórinn er aðeins til aðstoðar og trigging bílsins nær ekki yfir slíkt tjón.
Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Snúran sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Skila og skipiréttur í verslun er 14 dagar. (nema annað sé umsamið). Reikningur, kvittun eða skiptimiði er skilyrði fyrir vöruskilum. Varan þarf að vera ónotuð í upprunalegum umbúðum og óskemmd. Endurgreiðsla er í formi innneignarnótu. Flutningskostnaður er ekki endurgreiddur. Ekki er hægt að skila: Útsöluvörum Sérpöntuðum vörum Vefverslun / Skila- og endurgreiðsluréttur Samkvæmt lögum hafa viðskiptavinir rétt til þess að skila vörum sem keyptar eru í vefverslun og fá þær að fullu endurgreiddar. Skila þarf vörum innan 14 daga frá kaupum. Varan þarf að vera ónotuð í upprunalegum umbúðum og óskemmd. Sendingarkostnaður greiðist af kaupanda. Kaupandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi. GÖLLUÐ VARA Ef vara reynist gölluð eða eitthvað vantar í vöruna skal tilkynna það eins fljótt og auðið er, símleiðis í símanúmer 559 - 9002 eða á netfangið snuran@snuran.is. Eðlilegur tímarammi telst vera allt að 30 dagar frá móttöku vörunnar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að
galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála innan eðlilegra tímamarka. Við skriflega tilkynningu skal taka fram reikningsnúmer fyrir kaupunum eða kennitölu kaupanda. Senda skal mynd af gallanum ásamt mynd af vörunni í heild sinni og mynd af framleiðslunúmerinu sem er staðsett undir vörunni sé það til staðar.
Lög um neytendakaup er að finna hér https://www.althingi.is/lagas/145a/2003048.html
Greiðslur
Við bjóðum upp á þrenns konar greiðslumöguleika, millifærslu, kreditkort eða netgíró.
Það er hægt að greiða með millifærslu, þegar sá valmöguleiki er valinn þá færðu sendan tölvupóst með upplýsingum um reikningsnúmer og kennitölu fyrirtækisins. Pöntun er samþykkt um leið og millifærslan hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan 2ja daga telst pöntun ógild. Til þess að auðvelda okkur að staðfesta hvort að millifærsla hefur farið í gegn mælum við með því að senda kvittun úr heimbanka á pantanir@snuran.is með pöntunarnúmeri sem skýringu.
Þú getur einnig greitt fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Teya sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.
Einnig getur þú greitt með netgíró. Netgíró bíður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Þú þarft að vera með aðgang hjá Netgíró til þess að nýta þér þjónustuna, fyrir þá sem hafa hann ekki er hægt að skrá sig hérna. Þegar þú greiðir með netgíró þarftu aðeins að skrá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur stofnast á viðskiptavin í heimabanka sem greiða þarf innan 14 daga, vaxtalaust. Einnig er hægt að velja að greiða með raðgreiðslum og það er mögulegt á að dreifa því á 2-12 mánuði.
Öryggi og persónuvernd á vefnum Þegar þú notar vef snuran.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Snúran ehf miðlar þeim ekki til annara.
Snúran virðir friðhelgi perónuupplýsinga viðskipta vina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.
Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)
Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði Snúrunnar ehf , www.snuran.is er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Snúrunnar þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Snúran getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.
Notkun Snúrunnar á vafrarakökum Með því að samþykkja skilmála Snúrunnar Kt. 430779-0449 um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:
· bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
· að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
· að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
· að birta notendum auglýsingar
· að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið, Snúran notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar. Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.
Persónulegar upplýsingar sem við söfnum
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuververnd og meðferð persónuupplýsinga.
Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á snuran@snuran.is
Neðst á öllum markpósti sem Snúran sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.
Að versla á vefnum okkar
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.
Höfundaréttur og vörumerki Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.snuran.is eru eign Snúrunnar (Bústoð ehf), kt. 430779-0449 og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Snúrunni. Snúran er skráð vörumerki í eigu Bústoð ehf. og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá okkur.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Snúran gæti notað þessar upplýsingar til að koma skilaboðum áleiðis til viðskiptavina sinna. Ekki undir neinum kringumstæðum verður þessum upplýsingum miðlað til þriðja aðila.
LÖG OG VARNARÞING Skilmála þessa ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum. Ef kemur upp ágreiningur milli kaupenda og seljanda vegna skilmála okkar, verður málinu vísað til íslenskra dómstóla.
Bústoð ehf.
Tjarnargata 2
230 Reykjanesbær
Sími: 421-3377
Kt: 430779-0449
VSK númer: 76497