Þjónustusími 559-9002
Frí heimsending af smávörum ef verslað er yfir 20.000 kr
Myndskreytingin á sumarkrúsinni sameinar teikningar úr þremur mismunandi teiknimyndasögum frá árunum 1957, 1958 og 1959. Múmínálfarnir búa nálægt sjónum og við hliðina á húsinu þeirra rennur lítil á. Þeir veiða bæði í sjó og í ánni og þá sérstaklega Snúður sem býr í tjaldi við ána. Hann lifir að miklu leyti á fiskinum sem hann veiðir sjálfur en Snúður grillar fiskinn oftast við varðeldinn. Veiðar voru líka mikilvægar fyrir Tove Jansson sjálfa, sem bjó hálft árið á lítilli eyju í ysta eyjaklasanum í Finnlandi með sambýliskonu sinni Tuulikki Pietilä. Þar þurftu þær að veiða sér að miklu leiti til matar sjálfar. Netaveiðar, stangveiðar og snöruveiðar koma oft fram í Múmínsögum Jansson, bæði í skáldsögunum og í teiknimyndasögum.
Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar.
Þú færð tölvupóst um leið og við höfum tekið saman pöntunina þína.
Þú hefur 30 daga til að skipta vörum eða fá endurgreitt að fullu.
Sendum smávörur frítt ef pantað er fyrir 20,000 kr eða meira.
Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að heimsækja vefinn samþykkir þú skilmála um vefkökur.
Við munum senda þér tölvupóst til að endurstilla lykilorðið þitt.